Casablanca
Casablanca er bandarísk mynd frá árinu 1942 leikstýrð af Michael Curtiz með Humphrey Bogart, Ingrid Bergman og Paul Henreid í aðalhlutverkum. Myndin gerist í september 1941 í borginni Casablanca í Marokkó og fjallar um bandaríska útlagann Rick Blaine(Humphrey Bogart). Rick er eigandi "Rick's Café Américain" sem er fínn næturklúbbur og fjárhættuspilagreni. Klúbburinn laðar að sér margvíslega viðskiptavini, allt frá frönskum, ítölskum og þýskum embættismönnum og flóttamönnum sem reyna í örvæntingu sinni að komast til Bandaríkjanna til að komast undan stríðinu. Einn daginn fær Rick leyfisbréf í hendurnar. Bréfið leyfir hverjum sem hefur það í höndum sér að ferðast frjálst um Evrópu til Portúgal og er því ómetanlegt fyrir flóttamennina sem eru strandaðir í Casablanca. Nú þarf Rick að velja á milli konu sem hann elskar og að hjálpa eiginmanni hennar sem er leiðtogi tékklensku andspyrnuhreyfingarinnar að flýja Casablanca til þess að halda áfram baráttu sinni við Nasistana.